þriðjudagur, apríl 20, 2004

Það er aldeilis gaman að vera ég á þessum tímum sem við lifum á. Ég er núna uppi á bókasafninu uppi í skóla ásamt Halldóru og Kolla þar sem þau eru að gera frönskuverkefni. Ég er nefnilega læst úti, kom heim úr skólanum áðan í góðum fíling. Svo stuttu seinna fór ég út með ruslið, lokaði dyrunum á eftir mér og læsti mig úti. Þetta sýnir að ég er ótrúlega gáfuð og alltaf að lenda í einhverju skemmtilegur. Núna er ég hætt að bulla og ætla að leyfa ykkur að njóta lífsins sem þið lifið.






|