þriðjudagur, apríl 06, 2004

Það er nú blessuð blíðan sem er verið að demba yfir mann hérna á þessu litla sæta skemmtilega landi sem ég ætla ekki að flytja af þegar ég verð stór.

Það var gaman um helgina, það sem gerði allt svona skemmtilegt var að maður vissi að það ætti ekkert að vekja mann til að fara í skólann á mánudagsmorguninn, né heldur aðra morgna til 14.apríl. Ég sá líka bíómynd sem að ég var búin að gleyma, Beavis and Butt-Head do America. Suss! Það var liðinn allt of langur tími síðan að ég hafði séð hana svo við tókum hana auk 28 days later, á sunnudagskvöldið. Þessi mynd er svo óendanlega fyndin(Beavis...) að ég var í krampa mestalla myndina. Fjúff! Ef að þú ert ekki búin(n) að sjá hana..farðu og taktu hana núna!!

Hvernig ætli sé að vera kötturinn minn? Þessi skepna gerir ekkert nema að skottast aðeins um íbúðina til að liðka sig, sofa og éta. Ég persónulega held að þetta sé nokkuð skemmtilegt líf en síðan eru sumir sem eru svo miklir orkuboltar að þeir telja þetta ekki vera skemmtilegt. Það er samt örugglega skemmtilegra að vera kötturinn minn heldur en að vera könguló. Það hata næstum því allir(þ.á.m ég) köngulær, enda eru þetta ógeðslegar skepnur.

Þegar ég var seinast í Frakklandi þá vaknaði ég einn morguninn með riiisastóra könguló uppi á veggnum hjá mér, hún var algjör hlussa, sat voðalega hamingjusöm við skilin á milli veggsins og loftsins. Það var viðbjóður, ég æpti svo ógeðslega þegar ég sá hana að það munaði minnstu að augun skytust út úr hausnum á mér.

Njótið páskanna og páskafrísins..

|