föstudagur, apríl 30, 2004

Þetta fjölmiðlafrumvarp gerir mig svo reiða!!!! Við gætum alveg eins bara vakið ógnarstjórn Stalíns upp frá dauðum og látið þá gaura stjórna þessu landi sem við búum á. Fjandinn! Hvað er að þessu fólki?? Djöfulsins pakk, ég er að tala um ríkisstjórnina, móðgunargjarnir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins eiga ekki að móðgast. Reiði er eina tilfinningin sem að vaknar upp í mér þegar að ég hugsa um þetta, ég fæ alveg í magann af pirringi og reiði og fer að spá í hvernig þetta verður oðið þegar ég er fullorðin.

Annars þá eru prófin að byrja og það er ekki neitt sérstaklega skemmtilegt, ég hef einstaklega lítið gaman af því vegna þess að ég er ekki komin með vinnu fyrir sumarið og veit því ekkert hvað ég get gert af mér að þeim loknum. Það er svo pirrandi að fjölskylda mín getur ekki komið mér í neina gúdsjitt vinnu með klíkuskap, reyndar get ég bara ekki komist í neitt í gegnum klíkuskap. Held ég hafi sótt og seint um hjá Lansanum en kannski er Maggi lóðarstjóri leynilega ástfanginn af mömmu og því fæ ég vinnuna..vonandi. Það væri mjög hentugt ef að hann væri eins og feiti gaurinn í Malcolm í miðið..skotinn í mömmu og því fengi ég vinnu.

Af hverju er stærðfræðikennarinn minn svona andfúll? Þetta kvendi er ótrúlega andfúlt og stundum velti ég fyrir mér hvort að hún viti af því og gerir þess vegna mikið í því að anda svona mikið framan í mig þegar hún aðstoðar mig í tímum.

Humm, ég ætla að prófa að fara í þennan e-ð dagsins leik.

Lag dagsins: Here comes your man- Pixies..samt ókei Blood line með Slayer fær líka að vera með.
Skúrkur: Kötturinn fyrir að vekja mig þrjúhundruð sinnum í nótt.

Gangi ykkur vel í prófum..VÍ

|