sunnudagur, apríl 25, 2004

Ég fór í sund í gærdag, var nefnilega svo gott veður..reyndar var þetta ekki að neinu leyti mín hugmynd, Brynjar er bara svona sniðugur! Allavegana, þegar ég var þarna í sundlauginni fór ég að spá hvernig væri að fara að höstla ókunnuga manneskju í sundi. Ætli það myndi virka hjá gaurum að labba(synda, eftir því hvernig sem á það er litið) að stelpu í heita pottinum og hefja við hana samræður á borð við; Hey, heitur pottur..kemurðu hingað oft? Eða: Flott bikiní, systir mín á eins.
Já það væri sannarlega hægt að velta þessu fyrir sér lengi..en hvernig ætli það myndi vera fyrir stelpuna? Hvað gæti hún sagt við gaurinn..? Hún: Ohh! Ég er að kafna í þessum allt of heita potti!! eða; Úff! Ég er svo fegin að þú sért í speedo en ekki svona stórri sundskýlu.

Það er gaman að velta þessu fyrir sér..kannski að maður ætti að gera þetta í framtíðinni, ekki bara stara á fínu strákana í sundi. Heldur bara fara að þeim og koma með ótrúlega sniðugar pikk-öpplínur sem að eiga vel við í sundlaugum.

|