sunnudagur, apríl 04, 2004

Jeeee..ég er komin í ofurgott páskafrí, það er náttúrulega baaara skemmtilegt í páskafríum og reyndar bara öllum fríum yfir höfuð. Nema reyndar er svolítið mikið mikið skemmtilegt í páskafríum af því að þá er ekkert svona stress eins og í jólafríum, kaupa gjafir og þannig. Né heldur svona finnavinnustress eins og í sumarfríum, eða jú reyndar þarf marr að læra fyrir vorprófin í páskafríinu=/

Ahh þetta hefur verið skemmtilegt helgi til þessa. Í gærkvöldi var maður bara að rúnta e-ð út í loftið með Sidda og Hildi og Kötlu..það var spes..ég er víst eitthvað erfiður 'útvarpsplötusnúður':P Svo í dag var maður bara í góða fílingnum hjá honum Slibbedislabbb..hann var nefnilega einn heima þannig að það var lítið sætt tjill heima hjá honum. Arg! Mamma og pabbi héldu matarboð í kvöld og það er enn þá e-ð drukkið miðaldra fólk að tjá sig hérna heima. Það er ekki neitt of skemmtilegt svona þegar maður kemur niður að lenda í yfirheyrslum af hálfu þvoglumæltra ellismella.

Eeeníhú ég verð samt bara að segja hvað ég er góð manneskja, í gegnum sambönd sem að ég hef, fékk ég plakat af Mínus áritað af Krumma og Frosta handa Sölva:D Jájájá ég er sko eitursvöl;)

Jæja, núna ætti hún Vala að vera ánægð fyrst að ég bloggaði bara vegna skamma frá henni..

-Vala-



Hérna er ein nett svöl mynd af dúddunum í Mínus

|