föstudagur, apríl 09, 2004

Jæææja, þá er ég búin að fara á verstu tónleika í heimi. Ég hélt að þetta yrði skondið og sniðugt í góðu flippi en allt kom fyrir ekki. Ég hefði getað skemmt mér betur bundin við stól, neydd til að hlusta bara á tónlist með Celine Dion, Shania Twain og Anastacia í þrjá daga. Kannski ýki ég aðeins en þetta voru allavega massaslappir tónleikar. Það sem var sagt í auglýsingunum um að þær væru frábærar á sviði, það á kannski við á öllum öðrum tónleikum hjá þeim en þessum. Hápunkturinn(allavega af því sem ég sá) var þegar þær drógu stóla inn á sviðið og settust í þá áður en þær byrjuðu að syngja eitthvað lag. Annars þá voru þetta bara eins og þrjár mjög eðlilegar píur á balli, dilluðu sér bara svona voðalega normal og söngluðu einhvern sora. Piff..kannski er ég eitthvað hrikalega neikvæð en mér fannst þetta allavega ekki nógu sniðugt. Eina lagið með þeim sem er allavega hæft til að syngja með tóku þær SÍÐAST!!! Úff! Held að ég sé búin að kvarta nóg yfir þessum tónleikum núna..samt ömm núna hef ég sé þrjár gellur sem ég veit ekki hvað heita læv. Það gerir mig kúl að hafa farið á tónleika Sugababes ókeypis. Það er svo mikið feis við litlu stelpurnar sem að borguðu miklar fjárupphæðir til að sjá þetta rugl.

Þó var eitt skemmtilegt við þessa tónleika, einhver lítil tólf ára beygla var alveg að tapa sér yfir að einn gaur í salnum var að reykja. Hún stóð þarna gjörsamlega æpandi úr sér allt líf; ÞAÐ ER BANNAÐ AÐ REYKJA!! HÆTTU AÐ REYKJA! ÞAÐ MÁ EKKI REYKJA HÉRNA!!!!! Og hún var ekkert bara að kalla þetta létt á dúddann, neeeeei, hún var að öskra þetta með ógeðslegum píkuskrækjum. Svo bara missti ég mig og fór aðeins að gera grín að henni við einhvern. Þá náttúrulega tapaði hún sér(áttaði sig augljóslega aaalls ekki á hvað þetta var skondið fyrir mig) þannig að þegar ég var týnd og þurfti að komast eitthvað framhjá henni, leit hún framan í mig, horfði í augun á mér og öskraði óógeðslega!!!

Núna er ég búin að tjá mig nóg og er því hætt að skrifa inn á bloggið þangað til á morgun eða eitthvað bara:P

|