föstudagur, október 15, 2004

Það er svo mikið um holdlega snertingu hér í kvöld!

Gærkvöldið/nóttin var gaman. Það var ball hjá MH og fyrir það alveg gúdsjitt fyrirpartí hjá honum Sölva vini vors og blóma. Allt var skemmtilegt og fólkið líka!
Fyrirpartíið var gott, ballið var gott og eftirpartíið var fínt. Reyndar ætti kannski frekar að kalla þetta eftirtjill þar sem að allir voru nú bara að leggja sig heima hjá Sölva til að láta renna af sér.

Ein ákvörðun sem ég tók þetta kvöld var þó svolítið gleðispillandi..það var þegar ég ákvað að fara út án þess að taka húslykil með mér. Það fattaði ég ekkert fyrr en kl var að ganga fimm eftir miðnætti og var ég ekki aaalveg að fíla að hringja heim bara eeey hleypa mér inn ?? Þannig aaaaað ég gisti bara hjá Hildi Sóleyju sem var nógu góð til að hýsa mig. Ég þakka henni mjög fyrir það!!!

Ég er kát...voðalega kát..takk fyrir mig fólk sem var gott í gær og skemmti mér.

Núna er Vala hætt að tjá sig í bili...BÆJÓ

|