miðvikudagur, október 27, 2004

Ég fæ jólagjöf, ég fæ jólagjöf, ég fæ jólagjöf...

Ahh..það er á stundun sem þessum sem maður væri nú alveg til í smá verkfall til að slappa aðeins af og vinna upp tapaðan svefn. Ótrúlegt samt hvað þetta kennaraverkfall hefur haldist lengi, ég væri mjög sennilega orðin geðveik væri ég í grunnskóla núna. Krakkarnir hafa ekkert að gera á daginn..Þetta er bara eitthvað "koma í kringluna?"..."jájá," alla daga!!

Annars þá sá ég Sharktale um helgina og jiminn eini ég vona að guðirnir fyrirgefi mér fyrir að hafa efast um skemmtanagildi hennar núna um stund!!!!!! Hún er guðdómlega fyndin, reyndar fékk ég alveg minn skerf af aulahrolli yfir henni en í heildina séð gekk ég út af henni brosandi allan hringinn. Það var samt soldið spúkí að eftir myndina þegar við vorum að ráða ráðum okkar á bílaplaninu, keyrði einhver lítill bíll í hringi í kringum okkur. Þetta var silfraður póló með skyggðum ljósum og rúðum auk þess sem hann var fullur af svona derhúfugæjum. Frekar skerí!!

Ég er að spa í að gefast upp á þessu strákabandi, það vill enginn vera gaurinn í ermalausa bolnum. Þetta eru bara eintómir lúðar sem átta sig ekki á hvað þetta er mikilfenglegt tækifæri fyrir þá til að skjóta sér upp á stjörnuhimininn!

Skrifa eitthvað annað seinna...tútúlú

|