mánudagur, október 11, 2004

Gaman aaað þessu..

Ég verðskulda orðu fyrir afrek dagsins!!

Ég er búin að læsa mig úti tvisvar og taaakk fyrir það elskurnar mínarr!!!!!!!!

Helgin var hreint hin ágætasta og skemmti ég mér vel. Föstudagskvöldið var skemmtilegt og laugardagskvöldið líka..það er alltaf gaman þegar allt heppnast vel um helgar. Reyndar var sunnudagurinn frekar tæpur og kvöldið líka en kommon...það getur ekkert verið fullkomið.

Hljómsveitin Akrýl virðist samt eitthvað vera að beila á mér hérna, tóm leiðindi í þessum gaurum. Held að hún hætti bráðum í framakastinu vegna samskiptaerfiðleika, þeir eru svo vanþakklátir þessir gaurar. Tala við mig eins og ég sé að þessu fyrir sjálfa mig en ég er að koma þeim upp á stjörnuhimininn...þetta er horror! Ömurlegt hvað fólk getur verið vanþakklátt umboðsmönnum sínum í þessum harða heimi :/
Ég er nú samt búin að sannfæra Jónsa um að það sé rétt ákvörðun að aflétta nálgunarbanninu sem hann fékk sett á mig þannig að lífið er aðeins skárra en það var fyrir stuttu. Það var freeeeekar niðurlægjandi að vera með nálgunarbann á sér hérna..

Æj það er ekki gott að blogga uppi í skóla, of mikið af fólki og gaur hérna í tölvu rétt hjá mér sem ég hitti í partíi um helgina og var að segja eitthvað miður gáfulegt við að ég held. Er að forðast augnsamband við hann eins og heitan eldinn hérna. Annars þá er ég að blogga uppi í skóla af því að ég nennti ekki að fara í langt ferðalag til að láta hýsa mig og ákvað bara að skreppa upp í skóla eftir ferð á Quiznos. Neyðarlegt að vera biðjandi fólk um að hýsa sig.

Sjáið þetta spes blogg hérna: www.folk.is/astfangnar-lessur

Soldið langt blogg mín veit..

|