mánudagur, nóvember 08, 2004

..I try to laugh about it, hiding the tears in my eyes...

Þegar maður er alveg að deyja úr rembingi til að sjá á töfluna í frönskutímum, er það þá tákn um að maður eigi að kíkja til augna ? Neeee..hélt ekki.

Ég er reyndar bara að blogga af því að Katla er eitthvað að deyja og við viljum það nú ekki, aldrei gaman að vita af svona fólk sem deyr vegna bloggs.

Það er alltaf verið að eyðileggja drauma mína um betri heim og betra líf! Ég ætlaði að vera umboðsmaður besta strákabands í heimi..(allavega á Íslandi) en nei það varð ekkert úr því. Svo var ég búin að ákveða það að ég væri geðveikt töff, en þá er því líka stolið af mér! Ég fattaði nefnilega að ég er bara eeeekkert töff þegar ég sá flottasta gæja í heimi. Maðurinn sem er með bílnúmerið 4U2NV, hann er náttúrulega bara harðasti gaurinn!

Með hvernig bílnúmeri gæti ég feisað hann og orðið meira töff ??

Og já, ekki sjá Punisher! Þú gætir haldið það sama og ég hélt, semsagt að hún væri það bad að það að hafa húmor fyrir því gæti bjargað henni fyrir þér..en nei. Hún er of LEIÐINLEG.

Nota upphrópunarmerki svolítið mikið...ætla að bæta það...og líka svona punkturpunkturpunkturdæmi.

Sid- Brúðarbandið

|