fimmtudagur, nóvember 18, 2004

I'LL KILL YOU AND YOUR DREAMS TONIGHT..ROARR!!

ég held að einhver japönsk bölvun sé búin að taka sér bólfestu á heimili okkar, líkt og í hryllingsmyndinni sem er í bíó núna. Bíð bara eftir því að hendur vaxi úr hausnum á mér á meðan ég er í sturtu.
Það er nefnilega ALLT bilað á þessu heimili!!! Klósettið er með stæla, geislaspilarinn er með stæla, græjurnar í herberginu mínu eru með stæla, síminn hennar mömmu byrjaði að brenna(það kom allavega brunalykt úr honum og hann vildi ekki kveikja á sér) og svo mætti leeengi telja.

Mér finnst þetta allt alveg fríkar dúbíuss..

Ég lenti í því áðan að tala alveg fáránlega mikið í kross við mömmu. Hún spurði mig áðan "hvenær ferðu í prófið á morgun?" og mér fannst þetta mjög furðulegt þar sem að hún er vanalega EKKI með skólamál mín á hreinu svo ég svaraði bara "uh, 13:50." Fannst þetta soldið undarlegt, vanalega veit hún ekki af þeim fyrr en ég hef fyrir að segja henni einkunnina mína. Síðan fór hún í vinnunna og bara keis klósd, hringir svo heim eitthvað eftir það og fer að segjast vera búin að ganga frá málum þannig að hún fær bílinn í fyrramálið. Og ég var nú bara svona "já ókei, gott hjá þér vinan." Skildi ekki alveg hví hún var að tilkynna mér það, vissi ekkert til þess að hún þyrfti nauðsynlega á honum að halda á morgun..enn síður við eitthvað sem tengdist mér á nokkurn hátt. Svo þegar ég var svona ótrúlega áhugalaus um bílinn og að "hún gæti sko alveg skutlað mér á morgun" kom í ljós að hún var bara búin að bíta í sig að ég ætlaði sko í skriflega ökuprófið mitt á morgun. Hún var svo mjög móðguð þegar ég fór að stríða henni á þessu..veit ekki hvað ég hef sagt við hana. Sagðist "ætla að reyna að taka það í þessari viku," nefndi föstudaginn ekkert frekar en neinn annan dag!

|