mánudagur, nóvember 01, 2004

kommon kommon kommon kommon kommon ná töddz mí beib!

Akk! Systir mín á afmæli á morgun, hún er kreiiiisí gömul..er að fara að detta í 23 ára hérna!

Það eru allir eitthvað að afmælast hérna í kringum mann núna upp á síðkastið.

Ég er að spá í að fara að skella mér í bílprófið, vissir aðilar eru alltaf að leggja mig í einelti vegna þess að ég er ekki búin að fara í það og svo er ég núna búin að keyra bílinn okkar eftir að hann kom úr viðgerð, man hvað hann er ÆÐISLEGUR. Get ekki beðið eftir því að geta fengið hann lánaðan og bara skotist út á honum til að hitta fólk eða eitthvað þannig. Ohh ég get ekki beðið eftir því að fá hugrekki og nennleika til að fara í prófin!!!

Hvað vill fólk fá í jólagjöf núna í ár ? Alveg að deyja hérna!

hey þú sem gafst mér 2000 kall inn á kortið mitt án þess að ég vissi af..takk takk takk! Ég er þér mjög þakklát af því að fyrir vikið kemst ég í bíó í kvöld..vúhú! Langar samt að vita hvernig þessi peningur komst inn á það. Núna um daginn átti ég bara 291 kr inni á þessu korti..en í dag úúú 2000 kjeeeell!

(jóla)lag dagsins: Jólin eru að koma- Í svörtum fötum ...ok þeir eru ekkert gott band en þetta er skemmtilegasta jólalag sem samið hefur verið af þessum íslensku poppsveitum síðan jólastund og jólahjól!

|