ó reykjavík ó reykjavík sú yndislega borg
Mig langar að fá jólafríið mitt S to the trax!!
Ég var að fá próftöfluna í vikunni, hún er alveg ágæt sko. Fer í eitt próf fyrsta desember og svo bara ekkert próf aftur fyrr en sjötta og þá er ég í prófum til tíunda..alla daga. Síðan er það bara jóóólafrí! Djöfull hlakka ég til að vera búin í prófunum, eini gallinn við að hlakka til þess er að ég verð að byrja í prófum áður en ég klára þau. Og ég vil ekkert hlakka til þess að fara í prófin af því að ég er hrædd við þau. Eins og eðlilegt er...
Mig langar ekki í skólann á morgun, mánudagar eru svo illir dagar að það er ekki eðlilegt. Hvern langar til að byrja daginn á spænsku og svo beint í skólasund ?? Ekki mig!
En hey! Allir að vera góðir við Aldísi, Herdísi, Sigrúnu og Sögu..þær eyðilögðu einhverja busastráka í ræðukeppni í MR á föstudaginn síðasta! Til lukku stelpurrrr..!
Hey- Pixies
<< Home