fimmtudagur, nóvember 04, 2004

..Spiderman is gonna have you for dinner tonight....

Ég held að það sé samsæri í gangi í íslenskutímum hjá mér.
Ég er nokkuð viss um það að þegar kennarinn minn er að glósa á töfluna sé hann á einhvern leynilegan máta að kenna okkur hebreska stafrófið..eða þá að hann skrifar bara jafnilla og blindur api. Það er í alvöru fáránlegt hvernig hann fer að þessu, maður þarf að hafa sig allan við til að skilja þetta. Sú spurning sem kemur oftast upp í hausinn á mér í þessum tímum er „hvað ertu að reyna að segja ?" alveg rugl.

Æj ég ætla að reyna aftur að stofna strákabandið Akrýl að ári liðnu, karlmenn eru ekki alveg til í að steypa Nylon af valdastóli strax. Þetta er nú samt alveg hræðilegt, mér finnst stór móðgun við Spice girls að þessum píum sé líkt við þær. Engin sviðsframkoma hjá þeim og bara akk! Úff..sleppum því!

Ég er andsetin..ég get ekki á neinn hátt lokið við harry potter 5!!! Rugl í gangi!

Nóg í bili, en hlustaðu nú samt á Sober með Muse!

|