laugardagur, apríl 23, 2005

djöflamjólk!!

Á meðan ég sit í letikasti og nýt galdra þráðlausa internetsins hérna heima er ég með kveikt á sjónvarpinu, fjarstýringin er hvergi sjáanleg þannig að það er kveikt á rúv. Sem þýðir að ég er að horfa á leik í blaki. Það sem ég hef helst tekið eftir með þetta sjónvarpsefni í gangi, er hvað greyið lýsandinn verðskuldar mööörg stig fyrir viðleitni. Garpurinn er að hamast við að finnast þetta spennandi en af einhverjum ástæðum gengur það svolítið brösulega. Eina sem hann segir (mjög rólegur meira að segja) er jájájá. Ekkert JÁJÁJÁ!-fóboltajá-heldur bara "jájá það er inni í ísskáp jájájá."

Ég veit samt ekki alveg hvort ég hafi rétt á að skjóta á einn né neinn í ljósi þess að ég er frekar með kveikt á leik í blaki heldur en að standa upp og skipta um stöð eða jafnvel slökkva á vélarhelvítinu.

Ég er hugsi, ætli þetta sé leikur í lesbíudeildinni ?

aisha- cheb khaled
hello, i love you- the cure
richest man in babylon- thievery corporation

|