föstudagur, apríl 08, 2005

Kosningar já

Hann kemur sér fyrir á miðopnu svæðisins með kassann, fullan af góðgæti, og hefur hann opinn.
Skyndilega byrja dýrin að líta upp..finna eflaust lyktina af þessu gúmmelaði sem bíður þeirra þarna og innan skamms eru flestir komnir á fætur. Fyrst ganga tvær skepnur að manninum og þiggja hjá honum góðgæti og um leið og þær ganga frá honum upphefst mikið kapphlaup millri allra.
Allir hlaupa til frambjóðandans í von um að næla sér í einn íspinna.

Það var upplifun út af fyrir sig að horfa á matgarð umturnast í einhverja dýralífsmynd þar sem allir hlupu eins og óðir væru til þess að fá fæðu. Þetta er það góða við kosningavikuna, maður fær gott gefins og getur séð fólk verða sturlað til þess að fá eins og já..einn íspinna.

Kosningavaka í kvöld..VEI!

|