sunnudagur, ágúst 07, 2005

jóhann, farðu..

þegar maður bloggar um hlemm og eitthvað sem mætti nú betur fara verður múgurinn kjaftstopp en bloggirðu um enn ómerkilegri hluti, á borð við holdafar manns í framtíðinni, þá er múgæsingur. Skemmtileg staðreynd um blogg Valgerðar.

Annars vildi ég bara láta ykkur vita að það á ekki að fá sér heilsurétti á Vegamótum(né yfirhöfuð bara) af því að þá ráðast litlir gúmmíkubbar á matinn ykkar...sumsé; Tófú er úti..útiútiútiútiúti!

Inni er hins vegar að krassa brúðkaupsveislur.

Það er líka inni að nota sjálfstæðisflokkinn til að fá frítt áfengi, mat og dansiball.

Tónlistin: The Faint, the Postal Service og Café del Mar..

..þó að dæmið í gær hafi verið alveg fínt krakkar mínir, þá eigið þið samt ekki að kjósa sjálfstæðisplebbana.

|