fimmtudagur, ágúst 04, 2005

Vala tekur strætó

Ef einhver ætlar að halda því fram við mig að Hlemmur sé orðinn skárri og bara skrambi fínn staður núna verður sá hinn sami sleginn utan undir.

Í gær, rétt eftir hádegi, tók ég strætó til Hildar(vegna nýja kerfisins þarf ég að taka TVO strætóa niður í Vesturbæ..æði ?) og þegar á Hlemm var komið tók vingjarnlegur róni á móti mér. Hann var svo sætur í sér að hann pissaði í áttina að mér og veifaði félaganum bara eins og ekkert væri sætara.
Svo var ég búin að jafna mig á þessu dúddúrú, sómaði mér vel sem halta viðrinið meðal allra hlemmaranna, kemur ekki bara sjúklega sjúskað par og kaupir sér eiturlyf beint fyrir framan nefið á mér!

Ég veit ekki með ykkur hin en ég er of viðkvæm fyrir þetta nývöknuð!!!

Er það kannski bara vitleysa í mér að Hlemmur hafi átt að hafa lagast ???

.......ég + strætó= slæm blanda........

Tregafullt lag vegna þess að þetta var svo átakanleg saga: Maria Lando- Susana Baca

|