miðvikudagur, febrúar 15, 2006

Ég veit ekki hvað öðrum finnst en mér finnst þú allavega feit.

Undanfarið hef ég komist að ýmsu um sjálfa mig. Til dæmis þá rek ég víst út úr mér tunguna í tíma og ótíma þegar ég tala og ég kann ekki að synda.

Sundferð á laugardaginn; Fyrsta skipti sem ég SYNDI síðan árið 2004 örugglega, ef ekki lengra síðan. Ég drukknaði næstum því. Svosem ágætis skemmtun að drukkna...

Það er reyndar ekki fleira sem ég hef uppgötvað en það kemur örugglega á næstu dögum, febrúar er nú einu sinni tími nýrra hluta og uppgötvana...svo heitir hann líka "exoticus" á latínu. Ég er svona klár, ójá ójá.

Pick Up- Bonobo
Keep on groovin'(Ian Pooley edit)- DJ Sneak
Sow into you- Roisin Murphy
Sucka Nigga- A tribe called Quest

Gleðilega árshátíðartíma, bráðum!

Fylgist með: Fær Valastarfið sem hún hefur augastað á ?? Finna Vala og Unnur árshátíðarföt ?? GUÐ MINN GÓÐUR ÉG GET EKKI BEÐIÐ EFTIR NÆSTU FÆRSLU!!!(það hugsið þið sko, ekki ég..náttúrulega, ég blogga svo ég væri geðveikt heimsk ef ég hugsaði það..ha..það væri nú heimskulegt..skiljiði ekki ? ég er nefnilega ekkert það heimsk sko ég er alveg ágætlega klár þannig að ég hugsa ekkert svona heimskulega fattiði það? bæ).

|