þriðjudagur, febrúar 21, 2006

i'm the cherry on the top of yo ice cream

Vetrarólympíuleikarnir eru að gera mig brjálaða!! Það er ekki eins og ég biðji um mikið, mig langar að horfa á einn þátt á RÚV og það ekki einu sinni í hvert sinn sem hann er á dagskrá en fæ ég það ? Neeeeei..af því að það eru pottþétt svo geðsýkislega margir að horfa á SKOTFIMI Á SKÍÐUM.

"Heyrðu Jóhanna mín, eigum við ekki að sleppa þessu matarboði og vera frekar heima í kvöld, Johann Krautz er nefnilega kominn í fyrsta sæti í skotfimi á skíðum og hann keppir kl20. Ég get ekki misst af því, ef hann sigrar er líf mitt fullkomnað." -Haldið þið að þetta heyrist á einhverju heimili ? NEI

"Krakkar, eigum við að hittast í kvöld og horfa á keppnina í skíðagöngu ? Jan Tyrson er að keppa!!"
NEI

Ég ætla að fara og vera með hoj fyrir utan RÚV.

I want you back- Nsync

|