miðvikudagur, mars 22, 2006

Hengja ? Skera ? Drekkja ?

Alheimurinn vill segja mér eitthvað, eitthvað neikvætt.

Hér koma útskýringarnar:

Sl. Laugardagsnótt; Valgerður stendur inni á Select með pylsu í hönd, hún er ánægð með lífið. Karlmaður nálgast, hún stendur í þeirri trú að hann sé bara ósköp saklaus maður sem kemur lífi hennar ekkert við og verður skjótt gleymdur, annað kom á daginn. Hann horfði á hana með hálfgerðri fyrirlitningu og sagði svo: ,,Er pulsan þín góð, feita ?" Greyið stúlkan fraus og gat ekkert sagt, hann gekk burt. Þetta kallar maður að vera feisaður í drasl.

Í dag(rétt áðan eiginlega); Valgerður er á gangi í skólanum og lendir í miðri skólakynningu, allt er stíflað. (ógeðslega feit busamella og loðinn) Busi kemur til hennar og ætla að vera svakalega fyndinn fyrir (feitu og ógeðslegu) vinkonu sína með því að komast að því hvaða grunnskóli sé í heimsókn. Til þess að komast að þessu kemur hann til VALGERÐAR og spyr; úps ég gleymdi allt í einu í hvaða skóla við erum. Þegar hún fattar ekkert og svarar "uh, mh" segir hann "nei ég meina sko grunnskóla"!!!!!!!!!!! HÚN VAR NÆSTUM ÞVÍ BÚIN AÐ DREPA ÞAU BÆÐI ÞEGAR ÞAU HLÓGU AÐ HENNI EFTIR AÐ ÞAU UPPGÖTVUÐU AÐ HÚN VAR NEMANDI Í MH.

Leigumorðingi óskast, helst einhver sem sérhæfir sig í einstaklega ógeðfelldum morðum.

Alheimurinn vill að ég deyi úr anorexíu eða fái anorexíu og drepi mig síðan.

Ég meina gaur, ókei ég klæði mig ekki eins og einhver bomba dags daglega en það er líka bara af því að ég fer ekki í skólann með það að markmiði að höstla ógeðslega mikið og ríða samnemendum mínum í drasl..HELDUR TIL AÐ FRÆÐAST!

Svo er ég líka sautján sinnum svalari en eitthvað tíundu bekkjar ógeð og loðnir og feitir busar ef út í það er farið.

LÁTIÐ MIG VERA!!!!

|