þriðjudagur, mars 07, 2006

talaðu með mjöðmunum

Einn daginn ætla ég að æla, gráta og vera með blóðnasir á sama tíma. Ég ætla að taka það upp á myndband og síðar hljóðsetja myndbandið með eurovision-syrpu.
Planið er að hafa save your kisses for me, minn hinsti dans, just a little bit og shake it í syrpunni. Kannski waterloo líka, hef ekki ákveðið það.

Síðan sel ég einhverju stóru galleríi þetta vídjó og þeir setja upp sýningu. Svoleiðis rætist draumur minn um að verða frægur listamaður eins og ég hef ALLTAF viljað.


Spurning hvernig ég get haft sýningu mína meira indí...

|