fimmtudagur, apríl 06, 2006

Ég veit ekki alveg hvernig ég fékk þá flugu í hausinn að ég hefði taugar í e-a kosningabaráttu, Hildur og Sigrún vita örugglega best af öllum hvað ég er ótrúlega langt frá því að hafa stáltaugar.
Þetta hefur samt verið rosalega skemmtilegt en samt mega óþægilegt að hafa svona ógeðslega litla hugmynd um hvort við tökum þetta eður ei.

Ég mæli með Hér & Nú-stelpu vikunnar, hún er ógeðslega kúl.

Annars er eitt sem mér datt í hug og hef mjög gaman af og það er skilningur Hér & Nú á viðskeytinu "Leyni-" Það kom nefnilega framan á því í seinustu viku að "BUBBI ÆTTI LEYNIKÆRUSTU SEM HANN VAR MEÐ ÚTI Í PRAG". Fréttamenn bleðilsins hafa sennilega hringt í hann og spurt "með hvaða gellu ertu mar ?? ert' að negla einhverja tussuþétta kjeddlingu foli ??" og hann svarað "þegiðu fífl". Þá er þetta leynikærasta, munið það; Allt sem þið viljið ekki deila með hér og nú er augljóslega svakalega mikið LEYNI.

Svo get ég ekki annað en lýst yfir gleði minni yfir því að AIN'T NO FUN... með SNOOP og WARREN G. var spilað uppi í skóla í dag, MH-djarnir kæta mig meira með hverjum deginum sem líður!

Teachers- Daft Punk
Frankly Mr Shankly- The Smiths

|