miðvikudagur, apríl 19, 2006

hefurðu heyrt brandarann um hana feitufeitu sem átti vinkonu sem hét feitafeitafeita. nei en hét vinkonan kannski vala ?

Jájá hvað segirðu kölski minn, farið að vera gott ?

Já...ég heiti Vala og samt drekk ég engan svala....

Hins vegar hatar lífið mig og ég er farin að hallast því að aðeins sé til djöfull en enginn guð og ég á enga verndarengla, það er á hreiiiinu.

Í gær, þá fór ég í bíó á mynd sem er svona smá tryllir en samt ekki..eiginlega bara svona já léleg mynd(when a stranger calls) en ég fékk ekki að komast í bíó áfallalaust, hóneihónei. Þegar ég var búin að kaupa miðann....og ætlaði að ganga inn í bíóið...á minn svala hátt..þá spurði stelpan í dyrunum "fyrirgefðu, ertu nokkuð með skilríki ?"

HA?! Hvað hvað hvað á ég að byrja að ganga í síðkjól með uppsett hár svo að fólk taki mig alvarlega ?! ÉG ER ÁTJÁN ÁRA, Á NÍTJÁNDA ÁRI! GEFIÐ MÉR SJENS!

Svo var ég að horfa á sjónvarpið líka og það var svona "hey krakkar sjáið hvernig Arnar Grant(oj) eldar!" og hann var að gera tortillas sem mér finnst rosalega gott en hann var svolítið flippaður. Tók fetaost og um leið og ég var búin að sleppa hugsuninni; "mmm..fetaostur" þá sneri hann sér að myndavélinni og sagði "fetaostur, hann er góður....fyrir þá sem mega við því.."

Farin að hlusta á daft punk og taka hægðalosandi og æla.

|