sunnudagur, júní 11, 2006

Þar sem að foreldrar mínir hafa ávallt haldið því að mér að rétt skuli vera rétt fannst mér einmitt rétt að taka það fram að hin torskilda færsla sem að Unnur Lilja ritaði á bloggið mitt er engan veginn á mína ábyrgð. Vissulega gaf ég henni góðfúslegt leyfi en þó er innihald(ef innihald skyldi kalla) hennar ekki á nokkurn hátt tengt mér.

Þangað til næst bið ég ykkur vel að lifa og segi ykkur að hlusta á bob sinclair, martin solveig eða max graham ef þið þurfið að létta ykkur lundina og hrista skankana. Því eins og skáldið sagði er ekkert betra til að fá skankana á hreyfingu en að hlusta á house tónlist.

(það má samt alveg hlusta á hana úti á götu líka, þið þurfið ekkert að vera í húsi)

LOL @ VALA

|