sunnudagur, júní 18, 2006

soy un hombre muy amable!

Þessi færsla mun leiða merkilegan hlut í ljós og þið munuð jafnvel fá fyrir hjartað af sjokki. Ég var að rannsaka ýmislegt og sulla inni á vinnustofunni minni í morgun og þegar ég var búin að finna upp nýtt sprengiefni dembdi ég mér í mannfræðina. Á meðan ég lá yfir bókunum þungt hugsi um lífið, tilveruna og mannskepnuna kom skyndilega til huga mér spurning, spurning sem margir hafa eflaust spurt sig að; ætli sá maður sem er nógu heitur til að bræða jörðina undir fótum sér við það eitt að ganga út í búð sé fæddur ?
Og ég, ég fann svarið. Það svar sem ég fann og er eflaust rétt fyrst ég fann það er einfaldlega NEI. Heitasti maður alheimsins er því miður ekki enn kominn fram á sjónvarsviðið og kollegar mínir í háskólum um allan heim óttast að kannski muni hann aldrei fæðast vegna duttlunga örlaganna.

Heitasti maður alheimsins mun vera ófætt afkvæmi Ricky Martin og Shakiru. Þetta er hin fullkomna blanda! Sjáið fyrir ykkur karlmann sem fær útlit og mjaðmasveiflur föður síns i vöggugjöf auk magadanshæfileika móður sinnar. Hvaða kona(samkynhneigði karlmaður) myndi ekki vilja slá sér upp með þessu kyntrölli ?

Estimado ricky, encinta.si de shakira de marca usted no hace su encinta yo le violaré y entonces le mata.









|