ÍÍÍIK!
Prófin byrja á morgun!!!!
11 dagar í jólafrí!!!!
hljóp ég upp risstigann núna rétt í þessu þrátt fyrir að ég hafi runnið og meitt mig í honum fyrr í dag ?
Ég get ekki beðið eftir því þegar ég verð búin í prófum, þá verður vonandi ekki langt í að jólasnjórinn láti sjá sig aftur og stemmningin fyrir jólunum verður rokin upp í fólki.
þúst ok érr bara ekkað að labba niður götuna í þúst besta gírnum eða ekkað og þá bara allt í einu eitthvað ÁI! og ég bara er með þúst oj..MESTU túrverki í heimi!
..ég fór í leikhús í gær, þetta er með því meira framandi sem ég hef gert um ævina. Allt of sjaldan sem ég geri þetta, rosaleg upplifun! Það var allavega rosó skemmtó á Chicago í gær, enda var ég í góðum félagsskap sem að sýndi því mikinn skilning hvað ég kann ekki að vera siðmenntaður leikhúsgestur. Heldur kalla ég nammið mitt bara mellu og svona..jájá, þetta var gúdd. Var aðeins að pirra mig að Steinunn Ólína skyldi leika þann karakter sem hún var látin leika í sýningunni þar sem hún passaði svo ekki við hana..en þetta var í heildina mjög skemmtilegt.
ég held að einhver japönsk bölvun sé búin að taka sér bólfestu á heimili okkar, líkt og í hryllingsmyndinni sem er í bíó núna. Bíð bara eftir því að hendur vaxi úr hausnum á mér á meðan ég er í sturtu.
Núna ætla ég að deila með ykkur titlum á lögum sem eru skemmtileg um þessar mundir...engin sérstök röð á þessu hérna.
..best of doors
Það á að banna C.S.I: Miami, þetta er svo leiðinlegt eitthvað. Leikararnir í þessu eru (flestir) svo slappir að tveimur manneskjum tekst ekki að halda uppi kumpánlegum sprellsamræðum án þess að það sjáist laaangar leiðir að þetta sé leikið. Allar samræðurnar eru ljótar og æjj ég bara er ekki sátt við þessa þætti á neinn hátt. Gaurinn sem á að vera alveg eins og Grissom nema yngri og rauðhærður er engan veginnn líkur honum. Hann minnir mig bara á skólastjórahvalinn í Boston Public-þáttunum, bældur maður sem er alveg yfirnáttúrulega hás.
Þegar maður er alveg að deyja úr rembingi til að sjá á töfluna í frönskutímum, er það þá tákn um að maður eigi að kíkja til augna ? Neeee..hélt ekki.
Mig langar að fá jólafríið mitt S to the trax!!
Ég held að það sé samsæri í gangi í íslenskutímum hjá mér.
Akk! Systir mín á afmæli á morgun, hún er kreiiiisí gömul..er að fara að detta í 23 ára hérna!